13.1.2009 | 09:23
Hitt og þetta.......
Ég er ekki að nenna að vera lasinn. Ég er svo sjaldan lasinn að ég kann það ekki og næ ekki að slappa af.
Ég er nú *bara* með kvef, nýbúinn að klára pensilín skammt vegna eyrnabólgu og er nú kominn á annan skammt vegna kinnholusýkingar og sterasprey í nefið.......blablablablablablablablablabla.
En þrátt fyrir það heldur lífið áfram, kennslan byrjuð á fullu og alltaf gaman að hitta nemendur sem hafa verið á vinna á síðustu önn og eru að koma ferskir inn aftur, bara skemmtilegt.
Öll rútína kominn vel af stað, nú er bara að skutla og ná í börn á æfingar. Gréta er að æfa 5x í viku fimleika og Máni 3x í viku Frjálsar. Ég er nú svo heppin að vera í samvinnu með foreldrum um að skiptast á að skutla og sækja.
Jæja nóg af bulli í bili takk takk
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Farðu vel með þig! Sendi batastrauma
Sykurmolinn, 13.1.2009 kl. 10:27
Batastraumar frá mér líka.....
Gott að eiga venjulegt líf með æfingum, skutli og tilheyrandi.... .
Helga Dóra, 13.1.2009 kl. 11:15
Farðu vel með þig engillinn minn Knús og karm
Kristborg Ingibergsdóttir, 13.1.2009 kl. 12:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.