Uffffff $$$$$$

 Það sem þú hefur í hyggju mun gerast að lokum, svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur. Þegar réttur tími kemur smellur allt saman jafn auðveldlega og að snúa lykli.
 
Þetta er stjörnuspá dagsins.
Ég vona að þetta sé satt því að ég er að fara í brjálaðar framkvæmdir hér heima og miða við efnahagsástandiðDevil veitir manni ekki af smá jákvæðni.Wizard
 
Vorum að panta glugga, hur og bílskúrshurð á bílskúrinn sem er nýkominn með bárujárnið á þakið og á miðvikudaginn kemur pípari til að laga alla ofna og ofnalagnir, $$$$$$$$$ Crying úff hvað er maður að pæla. En þetta þarf að gera, ég bý í húsi sem var byggt 1955 og það er kominn tími á viðhald. 
 
Knús til ykkar Cool 

26.2

É for áðan inn á Doktor.is og sett inn hæð og þyngd, bara í tilefni af vigtunardegi mínum. Ég er kominn í tölu sem ég hef ekki séð í mörg herrans ár   ...........BMI ...26,2

knús


Að vera.......

Það er gott að koma heim.... það var gaman í Rotterdam.........Fór 3x út að borða........fólk er frábært....kokkar eru yndi.......ekkert mál að vigta og mæla í Rotterdam.

 

 

Mundu að það er mismunur milli þess að þekkja

afl þakklætis og þess að nota þakklæti raunverulega í lífi þínu.

Takk fyrir ykkur.

Góða nótt......Sleeping


Glæsilegt........Til hamingju Gugga mín,

Glæsilegt hjá Guggu frænku að vinna þessi verðlaun. Óska henni til hamingju með flott verðlaun. Frábært að sjá að öll hennar vinna sé metin og virt. Knús til þín Gugga mín Steina Vasulka, Steingrímur Eyfjörð og Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir.
mbl.is Sjónlistarverðlaunin veitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð helgi :)

Helgin er búinn að vera ljúf. Föstudagur rólegur, kom heim um hádegi og var í rólegheitum heima, vegna mikillar rigningu kom Svali snemma heim og var það ljúft að era öll heima í kósý skapi.

Svali fór á laugardag á gæsaveiði. Skrítið hvað sumir eru æstir í að fara upp á heiði til að sofa í tjald til að liggja í skurði og skjóta fugla í rigningu og roki. Whistling  Ég  fór að vinna á laugardeginum, vann til 15, fór svo að ná í frænkuskottið hana Helenu sem bróðir minn á og systir mín kom svo með sín skott heim til mín. 

Ég tók það að mér að  leyfa þeim að gista hjá mér. Þannig  að ég var með 5 börn, (Máni 10 ára, Helena 9 ára, Greta 8 ára, Ingvar 7 ára og Elín 5 ára.)  Mér finnst ég vera hetja að lifa það af. Við fórum í Suðurbæjarlaug,  fórum svo á videóleiguna og fundum myndir sem allir vildi horfa á ....úfffShocking það tók slatta tíma og samningsviðræður, síðan tók geðveikDevil gleði, hlátur (gelgjuhláturTounge), pískur, ískur og slatti að galsaW00t. Ég kom þeim öllum fyrir í risunu í hjónarúminu með mynd í tækinu og náðu þau að halda sér til  23 en þá fóru þau að detta í svefn eitt og eitt. Að sjálfsögðu var heimasætan mín síðust að sofnaSleeping, ótrúlegt hvað hún þarf lítinn svefn (mamma segir því miður að hún sé eins og ég var síðust að sofna -fyrst á fætur).

Skottin voru sótt um 11 leytið í morgun og tók þá tiltekkt við.

Síðan var ákveðið að fara í Bíó, mamma, pabbi, systir, mágur, mákona, móðursystir og maðurinn hennar, ég og börnin 5 fórum klukkan 15 á Mamma Mia. Brjálað LoL stuð og allir skemmtu sér vel. Kom heim og eldaði góðan mat.

Yndislegt að eiga góða helgi.   Takk fyrir mig og hafið það gott í kvöld.

Knús á ykkur HeartInLove 


Æðruleysi og Þakklæti


Var að kaupa 2 bækur í dag. Bók um Æðruleysi og um Þakklæti. Er að fara að byrja á sporunum og er að lesa mér til ánægju og yndisauka.

 

"Ég get látið af stjórnsemi minni ef

ég er fús að viðurkenna að æðri

máttur gæti vitað, hvað mér er fyrir

bestu." 

                                                         -----------------------------------------

"Þakklæti er tegund sjálfstjáningar

sem verður að deila með öðrum. Við

getum ekki sýnt þakklæti nema hafa

viðtakanda þess þakklætis." 

 

Knús S 


Togstreyta........

 
Það er gott stundum að fá svona smá pepp úr stjörnuspá.......síðust tveir dagar búnir að vera strembnir...er að kenna frá 8:10 til 17:30 og er að gefa mikið frá mér og þarf að passa að vera öguð og skipulögð en samt fagmaður....svo það er freka fyndið að fá svona spá....:) 
 
 Krabbi: Loksins finnurðu þig í vissum aðstæðum. Línan er samt fín og það er mikilvægt að slaka ekki á um of. Vertu agaður, skipulagður, sannur fagmaður.
 
 
Svo á ég 2 lyklabörn sem eru ein heima 3 x í viku....er að tala við Tendamömmu um að koma stundum og létta á áhyggjum mínu.....það er hringt í mig sirka 4-6 sinnum frá 14-17 á daginn og reynir það á sálartetrið mitt.
 
Ég þarf að gefa þessu tíma og sjá hvernig þetta fer...maður spyr sig er þetta að borga sig?...og hvernig höndla börnin þetta?.....já þetta er týpísk togstreyta móður sem langar að vinna en vill vera með börnim sínum á sama tíma.....Hvernig er hægt að vilja allt? ...það er ekki hægt ....best að sjá hvað æðri máttur gerir fyrir mig og vona bara það besta......:) 
 
 

LEIKURINN::::::

Ég er ein heima að horfa á leikinn og er að fríka út.....taugarnar að springa.......geðveiki........     33-29 fyrir Íslandi

Þvottakona óskast.....

Óska eftir góðri þvottakonu sem vill þvo, strauja, brjóta saman og setja inn í skápa.......er einhver á lausu.............ég er að drukknaPinch .....hjálp...finnst þetta leiðinlegt djobb......plís hjálp....Crying

 


Að leiða fund.....:)

Ég fékk þann heiður að leiða fund í kvöld. Ég ætlaði ekki að úthugsa hvað ég ætlaði að segja en var með einhverja punkta samt. en ég fraus í fyrstu og ákvað að romsa út og vona að það hafi skilað einhverju til hinna. Ég hef alltaf litið á þær sem leiða eins og þær væru rokkstjörnur GSA.

Ég verð að vinna allan daginn á morgun ein á hársnyrtistofunni, hinar eru að klára sumarfrí. En það er í fínu að vera ein stundum. Síðan tekur við að fara í Iðnskólann og undirbúa kennslu vetrarins....og ég hlakka mikið til. Jæja ekki meira í bili er að fara að sofa í hausinn á mér. knús og kram


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband